30.10.2011 19:36
Folaldasýning Hrunamannna
Stór helgi í Reiðhöllinni á Flúðum er lokið, ég og Einar höfum tekið að okkur húsvörslu þar á bæ þannig að það er búið að vera nóg að gera í þrifum og sjoppuvörslu.
Fyrst var Folaldasýning Tungnamanna það voru mörg glæsileg folöld þar á ferð en þó stóð eitt upp úr að mínu mati ( Adda Sigga ) og það var hestfolald frá Fellskoti jarpstörnóttur. Í gærkvöldi var svo söluuppboð á vegum Guðmanns í Langholtskoti og Gríms í Auðsholti og gekk það bara vel. Í dag var svo folaldasýnig hjá hrossaræktarfélagi Hrunamanna það voru þó nokkur efnileg folöld þar á ferð og Freyja frá Þórarinsstöðum sem er í eigu Lilju og Hjalla stóð efst af hryssum, glæsilegt folald með flottar hreyfingar. Sjálf fórum við með hana Myrru frá Miðfelli hún komst nú ekki í úrslit en engu að síður flott folald
Sem við erum ánægð með. Hér er að neðan er mynd af Myrru sem Siggi Sigmunds tók á sýningunni í dag.
.
Fyrst var Folaldasýning Tungnamanna það voru mörg glæsileg folöld þar á ferð en þó stóð eitt upp úr að mínu mati ( Adda Sigga ) og það var hestfolald frá Fellskoti jarpstörnóttur. Í gærkvöldi var svo söluuppboð á vegum Guðmanns í Langholtskoti og Gríms í Auðsholti og gekk það bara vel. Í dag var svo folaldasýnig hjá hrossaræktarfélagi Hrunamanna það voru þó nokkur efnileg folöld þar á ferð og Freyja frá Þórarinsstöðum sem er í eigu Lilju og Hjalla stóð efst af hryssum, glæsilegt folald með flottar hreyfingar. Sjálf fórum við með hana Myrru frá Miðfelli hún komst nú ekki í úrslit en engu að síður flott folald
.

Skrifað af Adda Sigga
11.10.2011 21:15
Haustverkin
Það er nóg að gera í hesthúsinu hjá okkur hér í Miðfelli þessa dagana. Við erum að vinna með þrjú tryppi á fjórða vetur, Gerplu frá Miðfelli undan Glódísi frá Miðfelli og Brag frá Túnsbergi spennandi meri og ekki spillir liturinn jarpskjótt. Svo er það hún Lending brún meri undan Heiðu frá Grund sem er systir Gusts frá Grund og er Kjarvalsdóttir, Lending er undan Geisla frá Sælukoti. Svo er það hann Þróttur hann er undan Æsu frá Grund og Feng frá Miðdal bleikálóttur sem verður líklegast grár með tímanum eins og mamma sín.
Síðan eru tvö sem eru á fimmta vetur, Krapi frá Miðfelli undan Heiðu frá Grund og Krumma frá Blesastöðum brúnn, stór og sterklegur hestur sem gengur ágætlega með. Glóð frá Miðfelli undan Glódísi frá Miðfelli og Funa frá Vindási rauðstjörnótt með hvíta nös, þæg og mikið uppáhald hjá honum Þorvaldi Loga.
Einnig erum við með skólahestana okkar heima við sem ég og Einar Logi notum í reiðmanninum en við erum öðru árinu þar, en það eru þær stöllur Brúður frá Syðra Skörðugili og Fjöður frá Miðdal skemmtilegar merar sem er gaman að vinna með. Ekki má gleyma henni Gjöf frá Miðfelli undan Gefjunni frá Grund og Glittnir frá Skollagróf, en Einar hefur verið að þjálfa hana, spennandi meri sem verður gaman að fylgjast með.

- 1
Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 3236
Samtals gestir: 1531
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:34:28